Á hádegisfundi Skýrslutæknifélagsins þann 12 des. sl. voru kynntar niðurstöður úttektar Sjá ehf. fyrir forsætisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga á vefjum ríkis og sveitarfélaga. Í úttektinni voru skoðaðir 246 vefir og þeir metnir með tilliti til rafrænnar þjónustu, innihalds, nytesmi og aðgengis. Þetta viðamikla verkefni er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið fyrir árin 2004-2007 og er í fyrsta skipti sem úttekt af þessari stærðargráðu er gerð á hérlendis. Megintilgangurinn var að fá heildstætt yfirlit yfir alla þá rafrænu þjónustu sem er í boði hjá ríki og sveitarfélögum, en einnig að auka vitund opinberra aðila um það hvar þeir standa í samanburði við aðra og gefa betri hugmynd um möguleika og tækifæri sem felast í rafrænni þjónustu.
Glærur af kynningarfundinum má finna á vef Skýrslutæknifélagsins en niðurstöður úttektarinnar má finna hér:
- Skýrslan öll á pdf sniði (á vef forsætisráðuneytisins)
- Skýrslan á vef félagsmálaráðuneytisins, flokkuð eftir stofnun og hægt að bera saman einstaka stofnanir
Skýrslan er mjög áhugaverð lesning og inniheldur m.a. gott yfirlit yfir vefi framhaldsskóla og háskóla. Ljóst er að margar stofnanir/skólar þurfa að gera átak í vefmálum hjá sér og er vonandi að úttekt sem þessi verði stjórnendum hvatning til að hefja það verk.

Harpa Hreinsdóttir gagnrýnir íslensku útgáfu alfræðiorðabókarinnar
Wikipedia harðlega í
Firefox 1.5 vefskoðarinn er kominn út og er óhætt að hvetja alla netverja að sækja sér útgáfuna hið fyrsta. Firefox 1.5 er bæði umtalsvert hraðvirkari og öruggari en þær útgáfur sem á undan hafa farið. Auk þess inniheldur hann nokkrar spennandi nýjungar sem vert er að skoða nánar. 
Presentation Zen

Recent Comments